Spjald starfsmanns

Spjald starfsmanns

Smelltu á starfsmann í listanum undir Starfsmenn til að opna spjaldið hans. Efst sérðu yfirlit, t.d. aldur, starfsaldur, næsta afmæli og núverandi ráðningartímabil, og hnappinn Bjóða starfsmanni ef hann hefur ekki fengið aðgang.

Flipar

  • Upplýsingar – nafn, gælunafn, starfsheiti, kennitala, tölvupóstur, símanúmer, ráðningarhlutfall og athugasemdir
  • Staðsetningar og deildir – hvar starfsmaðurinn getur unnið
  • Ráðningarsaga – upphafs- og lokadagsetningar ráðningar
  • Réttindi – réttindastig starfsmannsins
  • Kjör og Kostnaður – aðeins með viðbótinni Laun og viðeigandi réttindum. Sjá Kjör og launareglur
  • Frí – fjarvistir og fjarvistabeiðnir starfsmannsins

Starfsmaður hættir

Eyddu ekki starfsmanni sem hættir. Skráðu í staðinn lokadag í Ráðningarsögu. Þá færist hann undir síuna Fyrrverandi og eldri vaktir haldast óbreyttar.

Næstu skref