Vinnslusamningur

Síðast uppfært: 14. október 2026

Þessi vinnslusamningur er gerður samkvæmt 28. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679 (almennu persónuverndarreglugerðarinnar, GDPR) og 25. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Samningurinn er á milli viðskiptavinar sem notar Staffið.is („ábyrgðaraðili“) og Staffið.is („vinnsluaðili“). Hann er hluti af notkunarskilmálum og tekur gildi þegar viðskiptavinur stofnar aðgang að kerfinu.

1. Viðfangsefni og gildistími

Viðfangsefni samningsins er vinnsla vinnsluaðila á persónuupplýsingum fyrir hönd ábyrgðaraðila í tengslum við veitingu Staffið.is, hugbúnaðar til vaktaskipulags og starfsmannahalds.

Samningurinn gildir á meðan vinnsluaðili vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd ábyrgðaraðila, þ.e. á meðan áskrift er í gildi og þar til gögnum hefur verið eytt eða þeim skilað skv. 10. kafla.

2. Eðli og tilgangur vinnslunnar

Vinnslan felst í hýsingu, varðveislu, skipulagningu, birtingu og miðlun gagna innan kerfisins, sendingu tilkynninga og tölvupósts, öryggisafritun og tæknilegri aðstoð.

Tilgangurinn er að gera ábyrgðaraðila kleift að skipuleggja vaktir, halda utan um starfsfólk, fjarvistir og vinnutíma, áætla launakostnað og eiga samskipti við starfsfólk sitt.

3. Tegundir persónuupplýsinga og skráðir einstaklingar

Skráðir einstaklingar eru starfsmenn ábyrgðaraðila og aðrir notendur sem ábyrgðaraðili veitir aðgang að kerfinu. Tegundir persónuupplýsinga:

  • Nöfn og tengiliðaupplýsingar (netfang, símanúmer)
  • Kennitala
  • Vaktir og vinnutími
  • Fjarvistir og frí, þ.m.t. ástæður fjarvista sem ábyrgðaraðili kýs að skrá
  • Ráðningarkjör, samningar, kjarasamningar og launataxtar
  • Starfsheiti
  • Notendaupplýsingar og atvikaskrár (innskráningar, aðgerðir í kerfinu)

4. Skyldur ábyrgðaraðila

Ábyrgðaraðili ber ábyrgð á að vinnsla persónuupplýsinga sem hann skráir í kerfið eigi sér lagagrundvöll, að skráðir einstaklingar séu upplýstir um vinnsluna og að einungis séu skráðar upplýsingar sem eru nauðsynlegar í þeim tilgangi sem að er stefnt. Ábyrgðaraðili skal forðast að skrá viðkvæmar persónuupplýsingar (t.d. heilsufarsupplýsingar) nema brýna nauðsyn beri til.

5. Skyldur vinnsluaðila

  • Vinnsluaðili vinnur persónuupplýsingar einungis samkvæmt skjalfestum fyrirmælum ábyrgðaraðila, þ.m.t. samningi þessum og notkun ábyrgðaraðila á kerfinu, nema lög kveði á um annað.
  • Vinnsluaðili tilkynnir ábyrgðaraðila án tafar telji hann að fyrirmæli brjóti gegn persónuverndarlöggjöf.
  • Vinnsluaðili notar gögnin ekki í eigin þágu eða í öðrum tilgangi en að veita þjónustuna.
  • Vinnsluaðili aðstoðar ábyrgðaraðila, eftir því sem við á, við mat á áhrifum á persónuvernd og fyrirframsamráð við Persónuvernd.

6. Trúnaður

Vinnsluaðili tryggir að starfsmenn og aðrir sem hafa aðgang að persónuupplýsingum hafi skuldbundið sig til trúnaðar eða séu bundnir lögbundinni þagnarskyldu. Aðgangur er takmarkaður við þá sem þurfa hann til að veita þjónustuna.

7. Öryggisráðstafanir

Vinnsluaðili gerir viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir skv. 32. gr. GDPR til að tryggja öryggi persónuupplýsinga, m.a.:

  • Dulkóðun gagna í flutningi (TLS)
  • Rökrænn aðskilnaður gagna milli viðskiptavina og aðgangsstýring byggð á hlutverkum og heimildum
  • Takmarkaður og skráður aðgangur starfsfólks vinnsluaðila að gögnum
  • Regluleg öryggisafritun og prófanir á endurheimt
  • Uppfærslur og eftirlit með öryggisveikleikum í hugbúnaði og innviðum
  • Atvikaskráning og eftirlit með óeðlilegri notkun

8. Aðstoð vegna réttinda skráðra einstaklinga

Vinnsluaðili aðstoðar ábyrgðaraðila, eftir því sem kostur er, við að svara beiðnum skráðra einstaklinga um aðgang, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun, flutning eða andmæli. Berist vinnsluaðila slík beiðni beint vísar hann henni til ábyrgðaraðila án ótilhlýðilegrar tafar og svarar henni ekki sjálfur nema samkvæmt fyrirmælum ábyrgðaraðila.

9. Tilkynning um öryggisbrest

Vinnsluaðili tilkynnir ábyrgðaraðila um öryggisbrest við vinnslu persónuupplýsinga án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en 48 klukkustundum eftir að hann verður brestsins var. Tilkynningin skal eftir föngum lýsa eðli brestsins, tegundum og áætluðum fjölda skráðra einstaklinga og gagna, líklegum afleiðingum og ráðstöfunum sem gripið hefur verið til. Vinnsluaðili aðstoðar ábyrgðaraðila við að tilkynna brestinn til Persónuverndar og skráðra einstaklinga eftir því sem við á.

10. Eyðing og skil gagna við lok samnings

Við lok áskriftar getur ábyrgðaraðili flutt út starfsmannalista og óskað eftir afriti af öðrum gögnum sínum. Vinnsluaðili eyðir persónuupplýsingum ábyrgðaraðila innan 30 daga frá lokum áskriftar, nema lög krefjist frekari varðveislu. Gögn í öryggisafritum eyðast við reglubundna endurnýjun öryggisafrita. Að beiðni ábyrgðaraðila staðfestir vinnsluaðili eyðingu skriflega.

11. Úttektir og upplýsingagjöf

Vinnsluaðili lætur ábyrgðaraðila í té allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að sýna fram á að skyldum samkvæmt 28. gr. GDPR sé fullnægt og gerir ábyrgðaraðila, eða óháðum úttektaraðila á hans vegum, kleift að gera úttektir, þ.m.t. skoðanir. Úttektir skulu tilkynntar með hæfilegum fyrirvara, fara fram á venjulegum vinnutíma og ekki raska rekstri vinnsluaðila eða trúnaði gagnvart öðrum viðskiptavinum. Ábyrgðaraðili ber kostnað af úttekt nema hún leiði í ljós verulegt brot vinnsluaðila.

12. Undirvinnsluaðilar

Ábyrgðaraðili veitir hér með almenna heimild til að nýta eftirfarandi undirvinnsluaðila. Vinnsluaðili tilkynnir ábyrgðaraðila um fyrirhugaðar breytingar á listanum með a.m.k. 30 daga fyrirvara og getur ábyrgðaraðili andmælt breytingunni innan þess tíma. Vinnsluaðili leggur sömu skyldur á undirvinnsluaðila og hvíla á honum samkvæmt samningi þessum og ber ábyrgð á efndum þeirra.

UndirvinnsluaðiliTilgangurStaðsetning vinnslu
1984 ehf.Hýsing kerfis og gagnagrunnsÍsland
Microsoft Ireland Operations Ltd. (Azure)Geymsla skráa og öryggisafritaEES
Microsoft Ireland Operations Ltd.Sending tölvupósts (Microsoft 365 / Graph)Sjá persónuverndarstefnu viðkomandi aðila
Payday ehf.Reikningagerð og innheimta áskriftaSjá persónuverndarstefnu viðkomandi aðila
Expo (650 Industries, Inc.)Miðlun tilkynninga í farsímaappSjá persónuverndarstefnu viðkomandi aðila
Google (Firebase Cloud Messaging)Tilkynningar í Android-tækiSjá persónuverndarstefnu viðkomandi aðila
Apple (Apple Push Notification service)Tilkynningar í iOS-tækiSjá persónuverndarstefnu viðkomandi aðila
Sentry (Functional Software, Inc.)Villugreining í farsímaappiSjá persónuverndarstefnu viðkomandi aðila

Ef undirvinnsluaðili vinnur gögn utan EES byggir flutningurinn á viðeigandi verndarráðstöfunum samkvæmt V. kafla GDPR, t.d. ákvörðun um fullnægjandi vernd eða stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.

13. Tengiliður

Fyrirspurnum um samning þennan, beiðnum um úttektir og tilkynningum skal beina til vinnsluaðila. Sjá einnig persónuverndarstefnu.

Staffið.is

Tölvupóstur: staffid@staffid.is

Vinnslusamningur þessi gildir um alla vinnslu Staffið.is á persónuupplýsingum fyrir hönd viðskiptavina.