Kostnaður vaktaplans

Kostnaður vaktaplans

Með kostnaðaryfirlitinu sérð þú hvað vaktirnar á tímabilinu kosta, reiknað út frá kjörum starfsmanna.

Kostnaðaryfirlitið krefst viðbótarinnar Laun. Án hennar birtist tilkynning með hlekknum Skoða viðbætur, þar sem hægt er að bæta henni við. Notandinn þarf líka réttindi til að skoða kostnað.

Kostnaður tímabils

Í ritlinum opnar þú Kostnaður tímabils undir Yfirlit í hliðarspjaldinu. Þar sérðu:

  • Fjöldi vakta
  • Heildarstundir
  • Vigtuðar stundir – stundir að teknu tilliti til álags
  • Heildarkostnaður
  • Skipting eftir álagi
  • Eftir deild – vaktir, stundir, vigtaðar stundir og kostnaður hverrar deildar

Kostnaður á starfsmann

Í spjaldi starfsmanns er flipinn Kostnaður. Þar velur þú tímabil (Frá og Til) og sérð stundir, vigtaða heild og kostnað starfsmannsins.

Hvaðan koma tölurnar?

Kostnaðurinn er reiknaður út frá kjörum starfsmanns (tímakaupi eða mánaðarlaunum) og launareglum samningsins sem hann er á, t.d. álagi og frídögum. Sjá Kjör og launareglur.

Næstu skref