Reglur á vaktaplani

Reglur á vaktaplani

Villuleitunarreglur eru sjálfvirkar athuganir sem keyra á vaktirnar á meðan þú vinnur í ritlinum. Niðurstöðurnar birtast í flipanum Viðvaranir í hliðarspjaldi ritilsins.

Reglurnar eru stilltar fyrir hvert vaktaplan fyrir sig.

Hvar stilli ég reglurnar?

  1. Farðu í Vaktaplön
  2. Opnaðu Fleiri aðgerðir (þrír punktar) við vaktaplanið og veldu Stillingar – eða smelltu á Stillingar efst í ritlinum
  3. Opnaðu flipann Reglur

Hver regla er útskýrð í listanum: stutt lýsing birtist undir nafni reglunnar og nánari skýring þegar þú opnar hana.

Reglur sem eru virkar sjálfgefið

ReglaHvað er athugað
Starfsmaður með gilda ráðninguVakt utan ráðningartíma starfsmanns
Vakt skarast á við fjarvistabeiðniVakt á tíma sem starfsmaður hefur sótt um eða fengið frí
TvívöktunSami starfsmaður á tveimur vöktum sem skarast
Lágmarkshvíld milli vaktaMinna en 11 klst. hvíld á milli vakta
Vikuleg hvíldMinna en 35 klst. samfelld hvíld á hverju 7 daga tímabili
Hámarkslengd vaktarVakt lengri en 13 klst.
Hámarksfjöldi vakta í röðFleiri en 6 vinnudagar í röð
Samningsbundnar reglurTakmarkanir í ráðningarsamningi, t.d. hámarksvinnustundir á dag eða viku
Vinna ungmenna (undir 18 ára)Starfsmenn 15–17 ára: vinna kl. 22–06, meira en 8 klst. á dag eða 40 á viku, minna en 12 klst. hvíld
ÚtivistartímiVakt barns sem endar eftir útivistartíma
Óúthlutuð vaktVakt sem enginn er settur á

Þegar starfsmaður er á fleiri en einu vaktaplani er tekið tillit til birtra vakta hans á hinum vaktaplönunum. Vaktir á skissuplönum eru ekki taldar með.

Reglur sem þarf að virkja

  • Lágmarkslengd vaktar – sjálfgefið gildi 4 klst.
  • Starfsmaður tengdur deild – varar við ef starfsmaður er settur á vakt í deild sem hann tilheyrir ekki
  • Starfsmaður tengdur starfsstöð – sama athugun fyrir starfsstöðvar

Að breyta reglu

Smelltu á reglu í listanum til að opna hana. Þar sérðu sjálfgefið gildi og sjálfgefinn alvarleika og getur stillt:

  • Virkja reglu – kveikir eða slekkur á reglunni
  • Gildi – t.d. fjöldi klukkustunda og mínútna, þar sem það á við
  • Alvarleiki – Viðvörun eða Villa
  • Strangt – þegar hakað er við þetta stöðvar kerfið aðgerðina sem brýtur regluna

Smelltu á Vista stillingar til að vista breytingarnar.

Viðvaranir og villur

  • Viðvaranir benda á eitthvað sem rétt er að skoða en stöðva ekki birtingu.
  • Villur stöðva birtingu tímabilsins þar til þær hafa verið lagaðar. Birta samt er aðeins í boði þegar eingöngu viðvaranir eru til staðar.

Næstu skref