Inn- og útflutningur
Inn- og útflutningur
Starfsmenn eru fluttir inn og út á CSV-sniði. Síðan er á slóðinni /company/{fyrirtæki}/employees/import-export og hefur tvo flipa: Útflutningur og Innflutningur.
Snið skrárinnar
CSV-skrá með semíkommu (;) sem skiltákn og þessum dálkum í þessari röð:
Name;Phone;Email;SSN;StartDate
- Name (nafn) og SSN (kennitala) eru nauðsynleg
- Kennitala verður að vera tíu tölustafir
- Hámarksstærð skrár er 10 MB
Einfaldast er að sækja fyrst útflutningsskrá og nota hana sem sniðmát.
Útflutningur
Í flipanum Útflutningur smellir þú á Sækja CSV skrá. Skráin inniheldur alla starfsmenn með nafni, símanúmeri, tölvupósti, kennitölu og upphafsdegi.
Innflutningur
- Opnaðu flipann Innflutningur
- Veldu CSV-skrána undir Hlaða upp CSV skrá
- Farðu yfir línurnar í töflunni. Þú getur leiðrétt reiti og fjarlægt línur áður en þú heldur áfram
- Hakaðu við Sleppa starfsmönnum sem eru þegar í kerfinu (eftir kennitölu) ef við á
- Smelltu á Stofna starfsmenn
Aðrar upplýsingar, t.d. starfsstöðvar, deildir og réttindastig, skráir þú á eftir á spjaldi hvers starfsmanns eða með fjöldaaðgerðum.