Fyrstu starfsmennirnir

Fyrstu starfsmennirnir

Þegar fyrirtækið er uppsett skráir þú starfsmennina. Þú getur skráð þá einn og einn eða flutt inn marga í einu úr skrá.

Að skrá starfsmann

Farðu í Starfsmenn í valmyndinni og smelltu á Nýskrá.

Starfsmannalisti

Listinn sýnir nafn, starfsstöð, deild og réttindastig hvers starfsmanns. Efst getur þú leitað og síað eftir tegund starfsmanns (Virkir eða Fyrrverandi), starfsstöð og deild. Flipinn Boð heldur utan um útsend boð.

Nauðsynlegar upplýsingar

  • Nafn – fullt nafn starfsmanns
  • Kennitala – notuð sem auðkenni og geymd dulkóðuð

Gagnlegt að fylla út strax

  • Gælunafn – það sem birtist í vaktaplaninu. Stutt nöfn gera plönin mun læsilegri
  • Starfsheiti – t.d. Afgreiðslumeistari
  • Tölvupóstur – nauðsynlegt ef þú ætlar að bjóða starfsmanni aðgang
  • Símanúmer
  • Ráðningarhlutfall – t.d. 100 fyrir fullt starf
  • Byrjunardagur
  • Ótímabundin ráðning – ef ráðningin er tímabundin tekur þú hakið af og skráir Lokadag
  • Starfsstöðvar og Deildir – hvar starfsmaðurinn vinnur
  • Réttindastig – sjálfgefna gildið fyllist inn sjálfkrafa

Gefðu starfsmönnum ekki hærra réttindastig en þeir þurfa. Hver starfsmaður sem fær réttindi umfram venjulegan starfsmann tekur stjórnendasæti í áskriftinni.

Að bjóða starfsmanni aðgang

Skráður starfsmaður er ekki sjálfkrafa kominn með aðgang. Til að hann geti séð vaktirnar sínar þarftu að bjóða honum:

  1. Finndu starfsmanninn í listanum
  2. Opnaðu Flýtiaðgerðir (örina) við hlið hans
  3. Veldu Bjóða á kerfið

Starfsmaðurinn fær tölvupóst með hlekk til að setja upp lykilorð. Boðið gildir aðeins fyrir það netfang sem það var sent á og aðeins einu sinni.

Í flipanum Boð sérðu öll útsend boð og stöðu þeirra.

Að flytja inn marga starfsmenn

Ef þú ert að flytja starfsmannalista úr öðru kerfi geturðu flutt hann inn úr CSV-skrá.

Snið skrárinnar

Skráin er CSV-skrá með semíkommu (;) sem skiltákn og eftirfarandi dálkum í þessari röð:

Name;Phone;Email;SSN;StartDate
  • Name og SSN (kennitala) eru nauðsynleg
  • Kennitala verður að vera tíu tölustafir
  • Hámarksstærð skrár er 10 MB

Innflutningsferlið

  1. Opnaðu innflutningssíðuna á slóðinni /company/{fyrirtæki}/employees/import-export
  2. Veldu flipann Innflutningur og veldu skrána undir Hlaða upp CSV skrá
  3. Farðu yfir línurnar í töflunni – þú getur leiðrétt reiti og fjarlægt línur
  4. Smelltu á Stofna starfsmenn

Þú getur líka sótt núverandi starfsmannalista í sama sniði í flipanum Útflutningur með Sækja CSV skrá.

Nánar: Inn- og útflutningur

Að fylla inn frekari upplýsingar

Smelltu á nafn starfsmanns í listanum til að opna spjaldið hans. Þar eru flipar fyrir:

  • Upplýsingar – grunnupplýsingar
  • Staðsetningar og deildir
  • Ráðningarsaga – ráðningartímabil
  • Réttindi – réttindastig starfsmannsins
  • Frí – fjarvistir og beiðnir

Með viðbótinni Laun bætast við flipar fyrir Kjör og Kostnað.

Nánar: Spjald starfsmanns · Samningar starfsmanna

Starfsmenn sem hætta

Eyddu ekki starfsmönnum sem hætta. Skráðu í staðinn lokadag á ráðninguna. Þá færist starfsmaðurinn undir síuna Fyrrverandi, hættir að birtast í vaktaplönum og eldri vaktir haldast óbreyttar.

Næstu skref