Yfirlit fyrirtækis
Yfirlit fyrirtækis
Yfirlitssíðan sýnir lykiltölur og stöðu fyrirtækis þíns á einum stað. Þú nálgast hana með því að velja fyrirtækið þitt og opna Yfirlit í valmyndinni.
Lykiltölur
Efst á yfirlitinu er röð lykiltalna fyrir valinn dag:
- Starfsmenn — fjöldi virkra starfsmanna
- Lausar — vaktir næstu 7 daga sem enginn er skráður á
- Vaktir — fjöldi vakta á völdum degi
- Athugið — vaktir sem þarfnast aðgerðar
- Veikir — starfsmenn skráðir veikir
- Beiðnir — beiðnir sem bíða samþykkis

Að velja dag
Yfirlitið sýnir einn dag í einu. Notaðu örvarnar eða dagsetningarvalið efst til hægri, eða flýtihnappana Í gær, Í dag og Á morgun.
Vaktir dagsins
Listinn sýnir vaktir valins dags og hægt er að sía hann eftir starfsstöð og deild. Flipar skipta honum í Allar, Athugið, Lausar og Veikir.
Úr listanum getur þú meðal annars úthlutað vakt, skipt um starfsmann, afturkallað vaktatilboð og skráð veikindi.
Beiðnir í bið
Spjaldið Beiðnir í bið sýnir fjarvistabeiðnir og vaktaskiptabeiðnir sem bíða yfirferðar og þú getur samþykkt eða hafnað þeim beint þaðan.
Starfsmannayfirlit
Neðst eru þrjú spjöld:
- Afmæli — afmæli og starfsafmæli næstu 30 daga
- Fjarverandi — samþykkt fjarvera sem er í gangi núna
- Komandi fjarvera — samþykkt fjarvera næstu tvær vikur