Að búa til vaktaplan

Að búa til vaktaplan

Vaktaplan er umgjörðin utan um vaktirnar. Hvert vaktaplan tilheyrir einni starfsstöð og skiptist í tímabil.

Nýtt vaktaplan

  1. Farðu í Vaktaplön í valmyndinni
  2. Smelltu á Nýtt vaktaplan
  3. Fylltu út:
    • Nafn – t.d. „Eldhús – Laugavegur“
    • Lýsing – valfrjálst
    • Upphafsdagur – fyrsti dagur vaktaplansins. Tímabil eru stillt á heilar vikur, mánudag til sunnudags
    • Staðsetning – starfsstöðin sem planið tilheyrir (nauðsynlegt)
    • Deildir – valfrjálst, þær deildir sem eiga að birtast í planinu
    • Sjálfgefin lengd tímabils (vikur) – sjálfgefið fjórar vikur
    • Skissuplan – hakaðu við ef planið er aðeins til æfinga. Ekki er hægt að birta skissuplön og þau hafa engin áhrif á önnur vaktaplön
  4. Smelltu á Stofna vaktaplan

Tímabil

Þú þarft ekki að stofna tímabil sérstaklega. Smelltu á Vinna til að opna ritilinn, skráðu vaktirnar og smelltu á Birta. Í birtingarglugganum velur þú vikurnar sem á að birta og þá verður tímabilið til.

Ritillinn opnast alltaf á fyrstu vikunum á eftir síðasta birta tímabili.

Vaktaplanalistinn

Í Vaktaplön sérð þú öll vaktaplön fyrirtækisins. Hægt er að leita og sía eftir stöðu (Virk eða Geymd), starfsstöð og deild.

Við hvert plan eru hnapparnir:

  • Skoða – opnar prentsýn af núverandi tímabili
  • Tímabil – sýnir tímabil plansins, hvort þau eru Birt eða Drög, og hnappana Skoða, Afbirta og Opna í ritli
  • Vinna – opnar ritilinn

Undir hnappnum Fleiri aðgerðir (þrír punktar) eru:

  • Stillingar – grunnupplýsingar, sniðmát, mynstur og reglur vaktaplansins
  • Stjórna tímabilum – listi yfir öll tímabil plansins
  • Geyma / Virkja – vaktaplan sem er ekki lengur í notkun er sett í geymslu í stað þess að því sé eytt

Næstu skref