Lykilhugtök
Lykilhugtök
Áður en þú byrjar að setja upp kerfið er gott að þekkja hugtökin sem notuð eru í Staffið.is. Þessi kafli útskýrir þau í stuttu máli og vísar á ítarlegri leiðbeiningar.
Fyrirtæki, starfsstöðvar og deildir
Fyrirtæki er efsta einingin. Öll gögn – starfsmenn, vaktaplön og stillingar – tilheyra einu fyrirtæki.
Starfsstöð er staður þar sem unnið er, t.d. útibú eða veitingastaður. Fjöldi starfsstöðva ræðst af áskriftinni þinni.
Deild er hópur innan fyrirtækisins, t.d. „Sala“, „Eldhús“ eða „Þjónusta“. Starfsmaður getur tilheyrt mörgum starfsstöðvum og mörgum deildum.
Nánar: Uppsetning fyrirtækis
Starfsmenn og ráðningarsaga
Starfsmaður er skráning á einstaklingi í fyrirtækinu. Kennitala er notuð sem auðkenni og er dulkóðuð í gagnagrunni.
Ráðningarsaga heldur utan um ráðningartímabil starfsmanns – hvenær hann hóf störf og hvenær hann hætti. Starfsmaður sem er hættur telst „Fyrrverandi“ og er ekki eytt.
Starfsmaður er ekki það sama og notandi. Starfsmaður fær fyrst aðgang að kerfinu þegar honum er boðið með tölvupósti.
Nánar: Fyrstu starfsmennirnir
Réttindastig
Réttindastig er safn réttinda sem ræður því hvað starfsmaður má gera. Hverju fyrirtæki fylgja fimm sjálfgefin réttindastig sem ekki er hægt að breyta eða eyða:
| Réttindastig | Hvað það nær yfir |
|---|---|
| Business Owner | Full réttindi á öllu |
| HR Manager | Starfsmannahald, kjör og ráðningargögn |
| Manager | Vaktaplön, samþykkt fjarvista og vaktaskipta |
| Recruiter | Ráðningar og skráning nýrra starfsmanna |
| Employee | Eigin vaktir og fjarvistabeiðnir |
Sjálfgefnu réttindastigin bera enska heiti í kerfinu og eru merkt Kerfissjálfgefið. Þau réttindastig sem þú býrð til sjálf(ur) eru merkt Sérsniðið.

Þú getur búið til þín eigin réttindastig til viðbótar.
Mikilvægt fyrir áskriftina: starfsmaður sem fær réttindi umfram það sem venjulegur starfsmaður hefur – t.d. að samþykkja fjarvistir – telst stjórnandi og tekur eitt stjórnendasæti í áskriftinni.
Nánar: Réttindi og heimildir
Vaktaplan, tímabil og vakt
Þetta er kjarninn í kerfinu og byggist upp í þremur lögum:
- Vaktaplan er umgjörðin. Hvert vaktaplan tilheyrir einni starfsstöð og getur náð yfir eina eða fleiri deildir.
- Tímabil er sá tímarammi sem er birtur í einu, t.d. fjórar vikur. Tímabil verður til þegar vaktir eru birtar. Vaktaplan getur haft mörg tímabil í röð og eitt þeirra er núverandi tímabil.
- Vakt er ein vinnulota á tilteknum tíma, með eða án starfsmanns. Vakt sem enginn er skráður á kallast laus vakt.
Nánar: Fyrsta vaktaplanið
Birting
Vaktir eru ekki sýnilegar starfsmönnum fyrr en þær hafa verið birtar. Í ritlinum notar þú Birta til að velja vikur og birta þær sem tímabil og Afbirta til að taka tímabil úr birtingu aftur. Birt tímabil er læst þar til það er afbirt.
Þegar þú birtir fá starfsmenn tilkynningu um vaktirnar sínar í starfsmannaappinu.
Sniðmát, mynstur og endurtekningar
Þrjár leiðir til að þurfa ekki að skrá sömu vaktina aftur og aftur:
- Sniðmát er tilbúin stök vakt með fyrirfram skilgreindum tíma, sem þú getur sett inn hvar sem er.
- Mynstur er hópur vakta yfir marga daga sem þú setur inn í einu lagi.
- Endurtekning lætur vakt eða mynstur endurtaka sig með reglulegu millibili, t.d. vikulega eða aðra hverja viku.
Nánar: Mynstur og sniðmát · Endurtekning vakta
Villuleitunarreglur og samningar
Villuleitunarreglur eru sjálfvirkar athuganir sem keyra á meðan þú vinnur í ritlinum, t.d. hvort starfsmaður sé skráður á tvær vaktir á sama tíma eða fái ekki næga hvíld á milli vakta.
Hver regla getur verið villa eða viðvörun. Villur stöðva birtingu tímabilsins þar til þær eru lagaðar; viðvaranir gera það ekki.
Samningur geymir kjara- og vinnutímareglur sem gilda fyrir tiltekinn hóp starfsmanna, t.d. samkvæmt kjarasamningi.
Nánar: Reglur á vaktaplani · Samningar starfsmanna
Stöður
Staða er starfsheiti eða hlutverk, t.d. „Kassastjóri“.
Nánar: Stöður
Fjarvistir, lausar vaktir og vaktaskipti
- Fjarvistabeiðni er beiðni starfsmanns um frí, veikindi eða annað leyfi, sem stjórnandi samþykkir eða hafnar.
- Lausar vaktir er markaður þar sem vaktir án starfsmanns eru í boði fyrir þá sem geta tekið þær.
- Vaktaskipti eru þegar starfsmaður býður upp vakt sína og annar tekur hana yfir. Sjálfgefið þarf stjórnandi að samþykkja skiptin.
Nánar: Fjarvistabeiðnir · Vaktaskipti og lausar vaktir
Áskrift og mörk
Áskriftin ræður hversu marga starfsmenn, stjórnendur og starfsstöðvar fyrirtækið má hafa. Kerfið stöðvar þig þegar mörkunum er náð og bendir á að uppfæra áskrift eða bæta við sætum.
Nánar: Áskrift